clockhere
Færslur: 2012 Janúar
28.01.2012 19:29
Blakleikur
Setti inn Myndband af leik Aftureldingar og Þrótti Nes í blaki sem fór fram í dag. Afturelding vann góðan útisigur á Þrótti Nes, 3-0. Hrinurnar fóru 25-18, 25-13 og 25-23, og skutust upp í 2 sætið með sigrinum. Stigahæstu leikmenn Þróttar voru Helena Kristín Gunnarsdóttir með 12 stig og Hulda Elma Eysteinsdóttir með 8 stig, en í Aftureldingu var það Velina Apostolova sem skoraði mest eða 12 stig, síðan kom móðirin hún Miglena Apostolova og Zaharina Filipova báðar með 10 stig.
Var að leika mér í Windows Live Photo og þetta var útkoman.
24.01.2012 22:38
Þorratunglið
Nýtt tungl kviknaði í gær í austri og samkvæmt því sem ég nam af eldri mönnum þá á hann að sveiflst frá austri til norðurs með tilheyrandi átökum fram að tunglfyllingu og seinni hluti verður umhleypinga samur. Við fjölskylda brugðu okkur í héraðið til að sjá sólina á laugardaginn en hún beitti skömmtunum þann daginn og lét lítið fyrir sér fara.
- 1
