Forsida
Samkomuhúsið að Staðarfelli í Dölum |
Ættarmót var haldið dagana 19 -21 júní 2009 að Staðarfelli í Dölum. Þar komu
saman ættingjar Guðmundar Jónssonar og k.h. Kristínar Jónasdóttur er voru lengst
af húsfólk á Breiðarbólstað Fellsströnd, annars vegar og ættingjar Einars Guðbrandssonar og k.h. Hólmfríðar Ágústu Björnsdóttur sem bjuggu í Vogi á
Fellsströnd.
Guðmundur var fæddur 22. mars 1882 á Breiðabólstað Fellsströnd Dalasýslu, og hann lést 15. apríl 1918 í Svínaskógi Fellsströnd, Dal., 36 ára að aldri. Þá hafði hann stuttu áður séð á eftir dóttur sinni Maríu í gröfina, en hún lést 20. febr. 1918 ný orðin 7 ára en hún var fædd þann 30. jan. 1911 á Breiðabólstað Fellsströnd Dal. Kristín Jónasdóttir sem hafði sé á eftir eiginmanni og dóttur á tæpum tveim mánuðum aðeins fertug að aldri, með tvo unga drengi Jón 9 ára og Guðmund 3 ára. Hún var fædd 7. okt. 1877 á Kjarlaksstöðum Fellsströnd Dalasýslu. Jóni var komið í fóstur, en Guðmundur ólst upp með móður sinni sem var í kaupamennsku, fyrst á Kjarlaksstöðum og síðar á Húsabæ. Árið 1946 bjó hún hjá Guðmundi syni sínum í Dagverðarnesi, en honum hafði safnaðs saman fé til að kaupa þá sögufrægu kirkjujörð. Kristín lést þann 24. febr. 1951 í Dagverðarnesi Klofningshr.,Dal. á 75 aldursári. og hvílir í Dagverðarneskirkjugarði. Þremur árum síðar ákvað Guðmundur að bregða búi halda á mölina og hefja nýtt líf.
|
|
Leiði Kristínar Jónasdóttur í Dagverðarneskirkjugarði. |
Börn Guðmundar og Kristínar a) Jón f: 19. jan. 1909 b)María f: 30.jan.1911- d: 20. feb 1918 c)Guðmundur f: 21. febr. 1915 |
|
Leiði Jófríðar ömmu og Jóns afa í kirkjugarðinum á Staðarfelli í Dölum. |
Nánar um Staðarfell Kynning um Strandahringinn |


