Heimasíða Jóns Guðmundssonar
    <language>is</language>
Túngarður
      <description>Í gamla bænum var ég fæddur í húsi sem var rifið um 1960, veit ekki alveg hvenær þessi mynd er tekin sennilega 1958 þar sem bárujárnið er ekki komið á en farið er að rjúka úr strompi. Ég skannaði þessa inn 2015 sennilega fundið hana hjá mömmu og hún hefur sennilega tekið hana man óljóst eftir kassavél sem hún átti sem var horft niður í og mynd sást í svarthvítu eflaust orðið bráð smáhanda svo var Jóa ömmusystir mín að taka myndir svo þessi getur verið tekin af henni en í minningunni var myndavélin hennar einskonar belgur sem kom út er hún tók lokið niður</description>
Fuglalíf á leirunni snemma morguns
      <description>Það voru fáir á ferð er ég skrapp inn á leiru með því hugafari að kanna fuglalíf þar. ekki voru mikið af þeim oft verið fleiri.gömul andlit sáust þó gæsir og endur sem hafa verið í nokkur ár en grisjað hefur úr stofninnum.Tjaldurinn hefur verið að fjölga síðustu daga en í morgun sá ég bara tvo, og ekkert af öðrum fuglum sjáanlegir þennan morguninn. fleiri myndir hér</description>
BN 96 - Spyrnir
      <description>fleiri myndir</description>
Fótboltaleikir helgarinnar á Norðfjarðarvelli
      <description>Á föstudaginn fór fram leikur í Íslandsmóti 2020 - 3. flokkur kvenna B2 deild         Fjarðab/ Höttur/ Leiknir                                               og                                          og fóru leikar  2 - 1 fyrir  Fjarðab/Hött/Leiknir                                                          Haukar                                         Fleiri myndir frá leiknum hérÁ Laugardaginn fór fram leikur í Íslandsmóti 2020 - 4. flokkur karla A-lið C2 riðill   Fjarðabyggð/ Leiknir   -  KFR    og fóru leikar   4 - 6 fyrir gestina       Fleiri myndir frá leiknum.         Í dag fór einni leikur í Íslandsmóti 2020 í 3. flokkur karla C1 deild Þar áttust við Austurland   og  ÍR/Léttir og fóru leikar 5 - 2 fyrir AusturlandFleiri myndir úr leiknum hér.     </description>
Hnúðsvanur (Cygnus olor)
      <description>      Þessi er búinn að vera á siglingu um Reyðarfjörðinn síðan í apríl, held ég hafi tekið eftir honum 26 apríl.    https://is.wikipedia.org/wiki/Hn%C3%BA%C3%B0svanur https://ebird.org/species/mutswa</description>
Fjöruferð
      <description>Hvað sjáið þið hér í fjörunni af fuglum.Þarna eru 14 stk af tegund Arenaria interpres Tildra sem er fargestur og kemur hér við vor og haust á ferð sinni milli varpstöðva og vetrarstöðva. Þær koma í maí byrjun í 3 - 4 vikur og safna fituforða fyrir för sína til varpstöðva á Grænlandi og Norður-Kanada, einnig er talið að á milli tvö-til fimmþúsund fuglar hafi vetrarsetu á Íslandi. setjum á aðdrátt sjá næstu mynd.Hvað fugl er hér fyrir neðaner það (Numenius phaeopus) Spói eða er þetta (Numenius arquata) Fjöruspói.þetta er (Limosa limosa) Jarðrakan sem er þriðja tegund hér í fjörunni á sama staðnum af snípuætt. Svo er nátturlega hellingur af (Turdus iliacus) Skógarþröstumog svo einnig (Larus ridibundus) Hettumáfur.</description>
Blak
      <description>Það er nú komin ár og dagar síðan ég hef sett nokkuð á þessa síðu bæði um að ræða leti og núna síðasta ár ný reglugerð sem lýtur að persónuvermd.   Núna um s.l. helgi fóru fram leikir í Mizunodeild karla og kvenna og fékk Þróttur Aftureldingu í heimsókn. Þar sem börn mín Tóti og Ester eru bæði með meistaraflokki þá tel ég það nú skyldu mína að taka myndir af leikum þeirra.          Fleiri myndir hér.    </description>
Ótitlað
      <description>Nú er N1 mótið í fullum gangi og get ég séð mannfjöldan út um eldhúsgluggann minn.Mig minnir að hafa verið með Þórarinn á N1 móti 2011 þá fyrsta mót hans sem hann keppti með Fjölnirog árið eftir með Fjarðabyggð. og tóku þeir gull.</description>
Íslandsmót haust 2015 3., 5.og 6. flokks á Neskaupstað
      <description>       Horfa á myndbandHorfa á myndband</description>
Fyrstu blakleikir haustsins á Norðfirði. 
      <description>Um leið og haustar taka við vetraíþróttir og hér eru það blak sem á hug bæjarbúa.Nú um helgina tókust á Þróttur Nes og KA.Leikur föstudagskvöldsins var léttur hjá heimaliðinu og fóru hrinur  26 - 24 önnur hrina 25 - 20 og svo sú þriðja 25 - 19.En í dag var viðsnúningur þá fóru leikar 20 - 25 önnur hrina 19 - 25 og svo þriðja 21 - 25fleiri myndirKvennalið Þróttar og KA áttust síðan við og sáu gestirnir ekki til sólar hrinur fóru 25 - 12 önnur hrina 25 - 11 og þriðja 25 - 13Fleiri myndir frá deginum í dag. </description>
1. deild kvenna C riðill Fjarðabyggð - Hamrarnir
      <description>Freyja Viðarsdóttir skoraði fyrsta markið fyrir heimamenn þegar 1.20 mín voru liðin af leiknum.Rakel Óla Sigmundsdóttir  jafnaði fyrir gestina á 62 mín. er hún rauk upp frá miðju og skoraði yfir Telmu markvörð sem stóð fyrir utan markteig.Andrea Dögg Kjartansdóttir skoraði síðan annað markið með svipuðum tilhrifum yfir markvörð sem stóð fyrir utan markteig.Aldís Auðbjörg Garðarsdóttir skoraði síðan með sendingu frá Rakel en dómarinn stóð nú ekki á góðum stað miðað við fyrr í leiknum er mark var dæmt af  er Freyja tók hornspyrnu og dómari dæmdi að broti hafi verið á markverði.Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik og bara klaufar að hafa ekki gert út um leikinn þá, komu síðan í seinni hálfleik varð viðsnúningur á liðinu inn á kom liðið þreytt og gestirnir snéru skyndisóknum sér í hag og náði þreytan fljótt yfirhöndinni í þeim eltingarleik. Besti maður okkar liðs var leikmaður nr: 10 Ellis Hillman mjög góð og hreyfanleg í vörn og tók síðan skyndisóknir og með von um að hún nái sér fljótt eftir slæma tæklingu undir lok leiks er hún tók eina skyndisókn upp  hægri kant er endaði að hún var flutt brott í sjúkrabíl.Er að velta fyrir mér með skiptingar liðsmanna hefur orðið einhver breyting á leikreglum?6.2 Heimilt er að skrá 18 leikmenn á leikskýrslu í hverjum leik, 11 sem hefja leikinn og 7 varamenn. Heimilt er að skipta öllum varamönnum inn á í hverjum leik með þeirri takmörkun að aðeins er heimilt að gera að hámarki 4 skiptingar í síðari hálfleik (og/eða framlengingu þegar við á). En þjálfari Hamrana skipti öllum 5 varamönnum inn í seinni hálfleik.Fleiri myndir hér</description>
Íslandsmót - 1. deild karla  Fjarðabyggð - Haukar
      <description>Fleiri myndir hér</description>
Bikarkeppni - Borgunarbikar karla  Fjarðabyggð - Kári 
      <description>Fleiri myndir hér  Leik 4 - 0 fyrir Fjarðabyggð</description>
Íslandsmót 4. flokkur karla A-lið E  Fjarðabyggð/Leiknir - Þór 2
      <description>Fleiri Myndir hérLeikar fóru 2 - 1 fyrir Fjarðabyggð/Leiknir</description>
Flotmeisa Parus major Great Tit
      <description>Flotmeisa nefnist þessi fugl á íslensku en á fræðimáli Parus major Great Tit heldur til í bakkanum hjá mér og er aðeins að spekjast. Skógaþrösturinn ekki frínilegur á svipinn yfir þessum gesti.Nú er Hettumáfur sem oftast er stimplaður vargfugl farinn að gera komur sínar í garðinn En Dúfur og Þrestir kippa sér ekkert upp við þá.</description>
Hugleiðing háhraðatengin - Ljósleiðari.
      <description>Ég hef því litla trú á því að loforð forsætisráðherra sem hann lét falla í áramótaávarpi "að á þessu ári hæfist vinna við átaksverkefni um að ljósleiðaravæða allt landið. Ráðherra lofaði slíkri tengingu á hvern einasta bæ, hvern dal og fjörð. Þannig yrði landið allt tengt við hraðbraut upplýsinga og samskipta".Hann er skráður að mig minnir með búsetu í Fljótsdalshéraði nánar tiltekið í Jökuárshlíð, og tilheyrði því ekki um átjánhundruð heimilum í dreifbýli sem áttu að fá aðgang að háhraðanettengingu innan átján mánuða sem Kristján Möller samgönguráðherra lofaði á sínum tíma í gegnum Fjarskiptasjóð sem stofnaður með lögum fjarskiptasjóð, nr. 132/2005. og þann 26 feb. 2009 undirrituðu samning þess efnis Fjarskiptasjóður og Síminn, en gildistími tilboða vegna háhraðanettenginga í dreifbýli var þá framlengdur um haustið vegna óvissu í efnahagsmálum. Kristján Möller samgönguráðherra sagði þá að það vera öruggt að háhraðatenging í dreifbýli verði komin á um allt land innan átján mánaða.  En þess má geta að þessi samningurinn var til fimm ára og tók gildi 1. mars 2009. Um haustið 2007 hóf síminn innleiðingu að 3G að mig minnir og hófst hratt uppbygging senda um allt land, seinni parts árs 2013 hóf 4G innreið sína inn á landið.En af hverju er ég að velta mér upp úr þessu.Jú fjölskylda konunar býr í sveit nánar í Fellunum og förum við stundum fjölskyldan þangað til dvalar í nokkra daga í einu og tekur maður þá fartölvuna og símann til að vinna á þegar maður bregður sér af bæ.Maður hleypur um með tæki og tól um allt hús til ná einhverju merki en það næst í góðum skilyrðum í suðvestur horni húsins eitt tvö prik hjá símanum og 2 merki E á Ipad á kort hjá Vodafon.Og þar sem stundaður er landbúnaður og flest skil eru rafræn þá hafði ég samband við Fjarskiptasjóð og var tjáð að þessi jörð væri ekki inn í þessum staðarlista  en það sé einkafyrirtæki sem hafi þetta og þjónusti þetta svæði en það byggði upp á örbylgjusambandi. Ég eða fjölskyldan eru ekki að fara fram á það að sé eins og heima hjá okkur þar sem bærinn er 16 km frá Egilsstöðum heldur að lámarksþjónustu sé sinnt og að GSM símasamband sé á flestum bæjum á héraði.</description>
Árið 2015
Fuglar í garði mínum á sl. sunnudagsmorgun.
      <description>Silkitoppa (Bohemian waxwing) 1 stykkiSvartþröstur (Common Blackbird - Turdus merula ) 3 stk kvenfugl.Robin - Erithacus rubecula  1 stk.Hettusöngvari (Sylvia atricapilla)  1 kvenfugl.Skógarþröstur (Turdus iliacus) 5 stykki í garðinum.</description>
fuglar í heimsókn
      <description>Þessir komu snemma í morgunmat bjó til úr mör fuglanammi setti í það fræ, rúsínur, hökkuð nýru og setti fyrst í kúlur og setti í tré, var heldur lítill áhugi, setti einnig í stærri form sem ég ætlaði að skera í bita seinna, datt í hug að setja það út á grasið og fuglar eru vitlaus í það Dúfur, Skógaþrestir, Svartþrestir, Hettusöngvarar, og Rauðbrystingar.Rauðbrystingur</description>
Óveður
      <description>Það er nú heldur langur tími sem ég hef bloggað síðast, er latur.En það voru heldur betur læti í veðrinu í gær, við hér í grunnskólanum höfðum í nóg að gera við að halda hurðum og gluggum lokuðum sem snéru í suður og vestur og gengu skaflar af sjó yfir bygginguna og möl sem þyrlaðist upp af planinu.einnig myndbrot í baráttu við glugga   og framhald en glugginn reif sig alltaf upp þar sem mikið sog myndast þarna.einnig tókust þökur á loft.</description>
Íslandsmót - 4. flokkur karla A-lið E riðill
      <description>Leikur í gær á Búðargrund gegn Tindastól  í Íslandsmóti 4. flokkur karla.Fjörugur leikur sem lauk með sigri heimamanna 2 - 0 og skoraði fyrirliðinn Kifah Moussa Mourad bæði mörkin.Nú eins og er trjónir Fjarðabyggð/Leiknir á toppnum með 10 stig og betra markahlutfall á Völsung, en Höttur spilaði við Tindastól í dag og er ekki komin inn úrslit hjá KSÍ.Hér undir er staðan í deildinni.Fleiri myndir</description>
1. deild kvenna B riðill  Fjarðabyggð - Álftanes
      <description>Leikur fór fram í 1 deild kvenna á Norðfjarðarvelli á milli Fjarðabyggðar og Álftanes.Þetta var tvískiptur leikur og áttu gestirnir fyrri hálfleik en heimamenn seinni hálfleik og voru mjög óheppnar að skora ekki, heilladísir voru ekki með heimamönnum í dag.Fyrsta mark kom á 13 mín er leikmaður númer 11 Erna Birgisdóttir skallaði í mark.Annað markið kom á 37 mín. það skoraði leikmaður númer 7 Oddný Sigurbergsdóttir.Þriðja markið kom svo úr horni er leikmaður númer 10 Edda Mjöll Karlsdóttir tók.Fleiri myndir frá leiknum.</description>
Íslandsmót - 3. flokkur karla C2 deild, Fjarðab/Leiknir/Höttur - Grindavík
      <description>Það fór leikur fram á Fellavelli á laugardag í þriðja flokki karla þar tók Fjarðab/Leiknir/Höttur á móti Grindavík. Þar kom fyrsta mark á 20 mín. hjá heimamönnum leikmaður númer 8 Mikael Natan Róbertsson       Annað markið leit dagsins ljós á 28 mín, það skoraði leikmaður númer 15 Marteinn Már Sverrisson  Og það síðast kom á 30 mín. en það mark skoraði leikmaður númer 20 Stefán Ómar Magnússon og urðu það lokatölur, Ekkert markvert í síðari hálfleik annað en á 53 mín. fékk Boris Jugovic Grindavík gult spjald og á 60 mín. Stefán Ómar Magnússon fyrir heimamenn.Hann hafði ekkert að gera Þorvaldur Marteinn Jónsson      markvörður og fyrirliði heimamanna annað en að hvetja sína menn.Fleiri myndir hér</description>
Íslandsmót - 4. flokkur karla A-lið E riðill, Fjarðabyggð/Leiknir - KF/Dalvík
      <description>Það fór fram leikir á Eskjuvelli í Íslandsmóti  4. flokks karla A-lið E riðill á milli Fjarðabyggðar/Leiknis og KF/DalvíkÞað má segja að þar fór leikur kattarins að músinni. strákarnir að norðan höfðu ekkert í sterka heimamenn. Jón Bragi Magnússon skoraði fyrsta markið á 4. mín.Kifah Moussa Mourad gerði næstu 4 mörk á 10, 15, 20 og 22 mín.Adam Örn Guðmundsson skoraði síðan á 32 mín.Bjarki Þór Óskarsson skoraði síðan á 37 mín.  fann ekki mynd af honum.8 markið á 45 mín, skoraði Sæþór Ívan Viðarsson glæsilegt nærri frá miðjum velli. mörk 9 og 10 komu á 50 og 55mín. þar var á verki Þórarinn Örn Jónssonmark á 65 mín. skoraði Kifah Moussa Mourad.og 12 markið gerði Hafþór Berg Ríkarðsson á 68 mín.Fleiri myndir hér </description>
4. flokkur kvenna A-lið E, Fjarðabyggð/Leiknir - KF/Dalvík
      <description>Það var betra jafnvægi yfir stúlkunum sem fór 1- 3 fyrir norðan stúlkur.Sú sem skoraði fyri þær var leikmaður númer 13 Bríet Brá Bjarnadóttir á 3 mín. aftur á 28 mín og á 53 mín.Halldóra Birta Sigfúsdóttir minnkaði muninn á 43 mín. fyrir heimamenn.Fleiri myndir hér.</description>
Íslandsmót - 3. flokkur kvenna B deild
      <description>Fyrsti leikur 3 flokks kvenna fór fram hér á Norðfjarðarvelli í dag Lið heimamanna sem saman stendur af stúlkum úr liðum Þrótti, Leiknir, Súlunni og Hetti sáu ekki til sólar á móti sterku liði Fylkis og fóru leikar 0 - 7 fyrir Fylkir, gengur betur næst.Fyrsta markið kom á 8 mínútu en það skoraði Íris Dögg Frostadóttir.næsta mark kom á 35 mín. frá Söru Lind Frostadóttur,3 markið kom á 37 mín. þar á ferð var Rakel Leifsdóttir4 markið kom á 44 mín. en það skoraði Helga Þórey BjörnsdóttirÍris Dögg skoraði sitt annað mark á 67 mín og Fylkir 5 mörkum yfir.Telma Lóa Hermannsdóttir bætti við 6 markinu fyrir Fylkir á 75 mín.og á 80 mín skallaði Theódóra Hjaltadóttir 7 markið fyrir Fylkir.Það var stoltur afi sem horfði á barnabarnið stjórna sínu liði og hélt hreinu marki.Birta Ósk Ómarsdóttir barnabarn Gísla Guðnasonar.Myndir frá leiknum hér.</description>
Íslandsmót 4. flokkur kvenna A-liða E riðill, Fjarðabyggð/Leiknir - Völsungur
      <description>Leikur í Íslandsmóti 4. flokks kvenna A-liða E riðill fór fram á Norðfjarðarvelli í dag og áttust við Fjarðabyggð/Leiknir - Völsungur, ég kom að horfa er fyrri hálfleik var lokið þá var staðan 3 - 0 og hafði Elísabet Eir Hjálmarsdóttir gert fyrstu tvö mörki á 4 mínútu og á þeirri 10.og á 21 mínútu skoraði Kristín Ólína Þorsteinsdóttir (finn ekki mynd af henni) 3 markið.Norðan stúlkur komur eldhressar til leiks í síðari hálfleiks og skoraði Alexandra Dögg Einarsdóttir  strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks. 3 mín. síðar skoraði Árdís Rún Þráinsdóttirog á 58 jafnar Bergdís Björk Jóhannsdóttir staðan 3 - 3fjórða mark heimastúlkna  kom á 63 mínútu úr víti sem Elísabet Eir tók.Fleiri myndir hér</description>
Íslandsmót - 4. flokkur karla A-lið E riðill
      <description>Í dag fór fram 2 leikur Fjarðabyggðar/Leiknis í Íslandsmóti 4. flokks karla A-lið E riðill á móti Völsungi.Það má segja að þarna fór annað lið en mætti Hetti í 1 leik og má segja að óheppni réði því að leikur endaði 4 -4 því við vorum betra liðið og má segja að meiri partinn voru strákarnir á helming gestanna meiri hluta leiksins.En fyrsta mark leiksins skoraði Atli Barkarson fyrir gestina á 6 mín.og á 9 mín skoraði Steinarr Bergsson annað mark fyrir gestinaen okkar menn hittu á markið á 12 mín. en þar var á verki Kifah Moussa.og á 34 mín. jöfnuðu okkar menn með marki frá Stefáni Alex. á 36 mín kom Rafnar Máni gestunum yfir og Kifah jafnar á 51 mín. Á 56 mín. kemur Elmar Örn gestunum yfir á nýjan leik.og loka markið átti Henrý Elís á 66 mín og jafnar í 4 - 4 og þannig fóru leikar og hér má sjá stöðuna á Íslandsmótinu.og fleiri myndir hér</description>
Karnivaldagur Nesskóla 2014
      <description>fleiri myndir</description>
Íslandsmót BLÍ 2014 - 3., 5. og 6. flokkur
      <description>Það voru 4 leikir leiknir í 3 flokk karla og kvenna í kvöld þremur lauk með oddahrinu. Hér má sjá úslitfleiri myndir</description>
Gráþröstur
      <description>Þá er frekjan komin í garðinn, mikill atgangur hjá Þröstunum og sá grái hefur alltaf yfirhöndina fiður um allan garð.Það eru 4 Svartþresti en sá fjórði er að ég held ekki Svartþröstur er á bringu ljós. -Er búinn að vera að leita á netinu og skoða betur myndirna þá er ég kominn á þá skoðun að þetta sé Svartþröstur sem er  minni og ljósari og er sennilega ungfugl.Svo er atgangur í fjörunni þar var stór hópur af Tildrum í baráttu við brimið.</description>
Fuglar
      <description>Það koma eitthvað af flækingum og er maður ekki tilbúinn með myndavélina og fuglinn er því floginn á braut því eitt er víst þeir skynja hreyfingu fyrir innan glugga.       Fjallafinka  - (Brambling - Fringilla montifringilla) hefur oft komið í garðinn undan farin ár bæði vor og haust söngur hansStarri kemur einnig vor og haust, hef ég grun að nokkrir séu hér á ferð.Skógarþröstur og einnig Svartþröstur kvk. mjög styggur.Þau eru eftir tvö þessi skræpóttu sá hvíti karl, eltir frúnna um allt, Fyrir þá sem hafa gaman af dúfum þá er hér tengill á myndband frá alþjóðlegri sýningu sem fór fram í Vancouver, Washington í jan. 2013. </description>
Upp er runnin Öskudagur.
      <description>Morgun á leið í vinnu öskudagur heilsar, á sér 18 bræður segir sagan, nú er bara spurning gengur það eftir. Nú eru tvö tungl í þessum mánuði, sem var einnig í janúarmánuði sem fór mildum höndum um okkur hitastig + með strandlengjunni, ekki amarlegt ef það gengi eftir með þennan mánuð.Börnin birtust í skólann í ýmsum gerfum.Skólaliðar brugðu á leik er þær biðu eftir börnunum sem þrömmuðu um bæinn með kennurum sínum og sungu fyrir starfsfólk fyrirtæka og stofnanna.Þegar börnin komu í hús brast á éljagangur og inn af hafi birtist TF-Gná og lenti fyrir neðan skólann á svæði sem væntalegur leikskóli rís á.</description>
Börkur NK (áður Malene S)
      <description>Eldri Börkur NK 122 við bryggju.                                  </description>
Dúfur
      <description>Nú hefur heldur þrengt að smáfuglunum og því hef ég hafið gjafir en það eru víst fleiri en smáfuglar sem sækja í matargjöfina, þar á meðal er hópur Bjargdúfna og blendingja, og nú í gær birtust hópur hvítra og grá sem hímdu í tíma undir trjám þegar mest gekk á í veðrinu.Hér eru nokkrar myndir af Dúfunum í nepjunni.</description>
Hinn árlegi jólamarkaður Dalahallarinnar 
      <description>Hinn árlegi jólamarkaður Dalahallarinnar fór fram í dag, þar fór einnig fram úthlutun úr afreksjóðnum Spretti sem er fjármagnað af  Alcoa Fjarðaál en úthlutun og utan um hald er í höndum ÚIA  og er hann einkum ætlaður til að styrkja íþróttaiðkun barna og unglinga með einkunnarorð Alcoa um afburði (excellence) að leiðarljósi.Síðan gladdi lúðrasveitin gesti og gangandi með nokkrum jólalögum undir styrkti sjórn Hildar Þórðardóttur.Flott framtak hestamannafélagsins BLÆR og meiri háttar hlaðborð.Ég er svo latur við að halda þessari heimasíðu minni gangandi, en vonandi kemur betri tíð.</description>
Haustið
      <description>Endalaus blíða.</description>
September
      <description>Svona er nú umhverfið í dag eftir að það dró fyrir sólu, og vetur konungur lét vita að hann væri á næsta leyti.Hér eru myndir teknar með viku millibili og þá var fólk í berjamó í 15 °C hita í síðustu viku.Fyrir ári síðan var ég að koma frá Færeyjum, hauga sjór er við komum að austur ströndinni. Nú var ferð Norrænu seinkað um sólahring vegna veðurs. En svona var útlitið þá á Fjarðarheiðinni, og er eflaust svipað ef ekki meiri nú.</description>
Þvottavél
      <description>  Þessi þvottavél var að gefa upp öndina hjá mér í vinnunni, er búinn að endast síðan 1999 og mér telst til að hún sé búinn að vinna í um það bil 1100 tíma, það er þegar skóli er þá þvær hún lágmark 3 suðurvélar af gólftuskum bómullar á dag 5 daga vikunnar, það er meðal fjöldi af starfsfólki og nemendum 255 þessi ár og umhverfið er þannig að meiriparturinn er ógrófin vegna framkvæmda, sandborið vegna hálku og berst því mikill sandur og gúmmí inn í húsnæðið. Nú er kominn meirihlutann tuskna í micro eða trefjaefni. Það er búið að skipta einu sinni um legur og pakkdós, en hún fór að leka eftir að það kom gervigrasvöllur á skólalóðina og fyrir tveim árum var skipt um kol. Nú er spurningin þessi er hægt að fá vél sem skilar því sama?</description>
Sumarmót ÚÍA og Síldarvinnslunar
      <description>Ég hef verið því miður ekki duglegur að halda við síðu minni, bloggaði ekkert í Júní og var illa minntur á það í gær að það vantar, því það eru víst nokkur sem fara reglulega inn á síðuna sérstaklega til að fylgjast með afkomendum í fótbolta, sem ég hef trassað að setja hér inn en sett inná facebokk í staðinn.Á föstudag brunaði ég með Ester og Þórarinn til að keppa í sundi (Ester) og frjálsum Ester og Þórarinn sem einnig keppti í strandblaki.má sjá gula kolla í bið eftir næstu grein.Ég var munstraður á klukku, sonurinn náði í myndavélina.Hildur Írena keppti sem gestur.Jóhann Ósk keppti fyrir Þrótt í boðsundi.Var í tjaldi með krakkana á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum, föstudagskvöld.Þórarinn að taka þátt í 200 m.Daði, Steingrímur og Atli Fannar á palli.Þórarinn varpar kúlu.Ester Rún í 600 m. hlaupi.Blés ekki úr nös er hún kom í mark.Atli Fannar eitthvað hugsi.Henrý Elís einbeittur.Ýmis tilþrif hjá strákunum.Brons, gull silfur og 4 sætiðGlaður með silfrið.Fleiri myndir</description>
Karnival Nesskóla 2013
      <description>Nemendur og starfsfólk gerðu sér glaðan dag í tilefni af síðasta skóladegi nemenda þetta vorið, veðrið með sól og tíu stafa tölu brosti á móti ungviðinu er það gekk um bæinn og heiðruðu fyrirtæki og stofnanir með söng og gleði, en hluti af starfsfólki skólans sem ekki tók þátt í göngunni settu upp borð og grill og buðu þreyttum börnum upp á pylsur og safa.fleiri myndir</description>
Sólskin og 15 stiga hiti.
      <description>setti upp trampólínið í gær og þessi lét ekkert trufla sig treysti krökkunum fullkomlega.en þegar þessi birtist þá var eins gott að forða sér upp í tré.Þetta var áberandi í gær í sólskininu í Drangagilinu.</description>
langt í sumarið?
      <description>Það er kuldi og það komu 3 Silkitoppur þegar ég setti epli út í morgun og þegar ég fór út klukkan hálf tíu í kvöld sat ein að snæðingi.Þessi lá í garðinum í skjóli á meðan hin dillaði sér og skoðaði krók og kima, Þessar þrjár eru alltaf komnar um sjö leytið á morgnana.</description>
Fuglalíf í garðinum.
      <description>Silkitoppa (Bombycilla garrulus) - Bohemian WaxwingÉg tek eftir því að þær eu að breytast um höfuðið önnur komin með dökkar rákir í höfuðfatið.Þúfutittlingur (Anthus pratensis) - Meadow PipitMaríuerla (Motacilla alba) Skógarþröstur (Turdus iliacus) - RedwingBjargdúfa (Columba livia)  Þær eru farnar að troða sér inn í Birkitrén að éta úr pokunum sem ég er að gefa Auðnutittlingunum - Redpoll - Carduelis flammea.</description>
Vorið á erfitt uppdráttar
      <description>Fór inn í höfn í dag stilla og þoka niður miðjar hlíðar og 5 stiga hiti.Þær eru nú tvær sem heimsækja mig á hverjum degi Silkitoppurnar.Og tveir eru þeir þrestirnir sem vappa í garðinum núna síðustu daganna.Fuglunum voru ekki sama þegar þessi birtist suðandi í garðinum.</description>
Sumardagurinn fyrsti
      <description>Kjarnbítur (Coccothraustes coccothraustes) - Hawfinch blasti við mér í morgunsárið kanna hvort eitthvað væri ætilegt.9 apríl 2009 kom Kjarnbítur við í garði mínum, því er þetta í annað skiptið sem ég næ myndum.Náði betri myndum af honum um hádegið þá kom hann aftur og rak í burt 4 Silkitoppur sem voru að gæða sér á eplum.Tveir Svartþrestir hafast við í garðinum síðan fyrir páska og eru stundum 4 saman í garðinum, Gráþrestirnir eru horfnir.Í gær þegar snjó hafði tekið upp þá kom Dúfa að leita að æti hún var með fast egg neðan á bringunni, hefur legið á og fiðrið náð að límast við eggið nema þetta sé leið til að færa egg milli staða.</description>
Fuglar í apríl
      <description>Silkitoppurnar halda áfram að heimsækja mig en eru eftir tvær sem koma daglega.4 svartþrestir eru komnir 3 karlar og einn kvenfugl.2 Gráþrestir eru einnig að sníglast í garðinum en eru afar styggir ég ekki búinn að ná mynd.og einn sem er líkur skógarþresti nema afar ljós á bringur og mjög var um sig.Hellingur af Skógarþröstum og mikið um áflög.Þessi kemur af og til í garðinn til að fá bita ómerkt.Ég tók fyrst mynd af svona dúfu um 2006 og hefur hún komið á hverju ári eftir það einnig nú í vetur en hef ekki séð hana síðan í feb., en þessi karl og kvenfugl á næstu mynd byrjuðu að mæta sl. haust og tel ég þessa fugla vera undan eldri dúfunni.Karlfugl að biðla til kvenfugls, snýst í marga hringi og gengur á ská.fleiri myndir</description>
Blak yngri flokkar
      <description>Fleiri myndir</description>
Blak karla Þróttur Nes og Þróttur Rey.
      <description>Þróttur Nes jafnaði Þrótt Reykjavík með 3-1 sigri í Mikasadeild karla í gærkvöld í Neskaupstað. Og er úrslitaleikur um fjórða sætið í dag. Þróttur Nes komu vel stemmdir til leiks og unnu fyrstu hrinuna 25-18. Önnur hrinan var jöfn og skemmtileg og endaði 25-22, Þrótti Nes í vil. En gestirnir frá Þrótti Reykjavík komu til baka dýrvitlausir í þriðju hrinunni og unnu hana 19-25 og við tók gríðarlega spennandi hrina, sú fjórða. Þróttur Nes hafði frumkvæðið nær allan tímann en Þróttur Rey. náði að jafna 23-23. Myndband frá síðustu mínútum sýnir stemminguna því liðin skiptust á að hafa frumkvæðið í lokin og Þróttur Nes vann sigur 30-28 og þar með leikinn 3-1.  Stigahæstu leikmenn fyrir Þrótt Nes. voru  Valgeir Valgeirsson með 22 stig og Matthías Haraldsson með 19 stig. Í liði Þróttar Reykjavíkur voru Fannar Grétarsson og Guðmundur P. Guðmundsson stigahæstir með 14 stig. Fleiri myndir frá gærkveldinu.Þróttur Neskaupstað vann í dag 3:0 sigur  á Þrótti Reykjavík  í lokaleik Mikasadeildar kvenna í blaki, hrinur fóru 25:14, 25:17 og 25:15. Að leik loknum var Þrótti Nes. afhentur deildarmeistarabikarinn. Þróttur N. endaði með 41 stig í deildinni, sjö stigum á undan næsta liði sem var Afturelding er í gær unnu HK sannfærandi 3 - 0. Þróttur Reykjavík hafnaði í 5. sæti. Myndir frá kvennaleiknum í dag, og myndir frá karlaleiknum </description>
Bátur að leggjast að bryggju
      <description>Fagraberg FD 1210 frá Fuglafirði að koma að bæjarbryggjunni, stórglæsilegt skip en börnin sem voru í útifríi höfðu engan áhuga á skipinu heldur vakti það áhuga þeirra að löggan var búinn að stoppa bíl við Björgunasveitarhúsið.</description>